ENGLISHEN
frettir

Námskeið í vinnuvernd fyrir Kópavogsbæ

Starfsfólk ÖRUGG verkfræðistofu hefur haldið fjölmarga fyrirlestra um vinnuvernd hjá fyrirtækjum með það að markmiði að auka þekkingu stjórnenda og starfsfólks varðandi aðbúnað, öryggi og vellíðan starfsfólks og efla þannig samstarf og vinnuverndarmenningu vinnustaða.

ÖRUGG verkfræðistofa býður einnig upp á námskeið í vinnuvernd fyrir öryggistrúnaðarmenn, öryggisverði og aðra vinnuverndarfulltrúa á vinnustöðum. Námskeiðið er viðurkennt af Vinnueftirlitinu sem grunnnámskeið í vinnuvernd. Hægt er að velja um að taka rafrænt námskeið eða sitja staðbundið námskeið.

Hér eru myndir af námskeiði sem haldið var fyrir starfsfólk Kópavogsbæjar í vikunni en undanfarið höfum við verið að fræða starfsfólk sem situr í öryggisnefndum um hlutverk þeirra og ábyrgð. Góð þátttaka hefur verið á námskeiðunum og nú þegar hafa tæplega 40 manns setið námskeiðin og fleiri eru eftir. Við viljum hrósa Kópavogsbæ fyrir metnað í vinnuverndarmálum og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Hér má fræðast nánar um námskeið ÖRUGG í vinnuvernd: www.oruggverk.is/namskeid