ÖRUGG verkfræðistofa heldur áfram að stækka í kjölfarið á aukinni eftirspurn og þróun stofunnar. Í haust bættust í hópinn brunahönnuðirnir Davíð Snorrason, sem kemur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Guðjón Rafnsson og Elvar Ingi Jóhannesson, sem einnig er sérfræðingur í BIM. Starfsmenn ÖRUGG eru nú orðnir sjö og bjóða upp á mjög breiða þjónustu í bruna- og öryggismálum ásamt vindgreiningum. Nánari upplýsingar um þjónustuframboð ÖRUGG er að finna á forsíðu.